Header Pic Header Pic
Header Pic
Header Pic
Header Pic  PfeilUpphafssíða
Header Pic
Header Pic
Aðalvalmynd
Upphafssíða
Verðskrá
Um Haukadalsvöll
Brautir
Gistiheimilið Geysir
Myndir
Fréttir
Tenglar
Hafðu samband
Leit
Innskráning





Týnt lykilorð?
Gestir: 302697

Haukadalsvöllur opnar á Laugardaginn

Haukadalsvöllur opnar formlega þetta árið laugardaginn 12 maí. 

Völlurinn eins og annar gróður hefur komið snemma til þetta vorið og opnum við því heldur fyrr en undanfarin ár. 

Vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og skaffi okkur gott golfveður, þótt spáin sé reyndar ekki góð, snjókoma í kortunum fyrir næstu viku.

 
Úrslit í Texas Scramble móti Sumarferða

1.sæti Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir GOB og Gunnar Ingi Björnsson GOB á 71 höggi nettó

2.sæti Erla Pétursdóttir GO og Ísleifur Leifsson GKB á 72 höggum nettó

3. sæti Guðný Helgadóttir og Hákon Gunnarsson á 72 höggum nettó

Næstir holu á par 3 holum voru:

5/14 braut Jens Uwe Friðriksson GOS  1,55m

7/16 braut Ísleifur Leifsson GKB  1,32m

Verðlaun voru  60 þúsund fyrir 1.sætið, 40 þúsund fyrir 2. Sætið og 30 þúsund fyrir 3. sætið, allt ferðaávísanir á ferðir hjá Sumarferðum, nándarverðlaun voru kassar af Callaway golfboltum.

Þökkum þátttakendum fyrir komuna og Sumarferðum fyrir veglega vinninga.

 
Texas Scramble mót á sunnudaginn 3. júlí

Texas Scramble para- og hjónakeppni. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í boði Sumarferða.

Fyrirkomulag:
Leikfyrirkomulag er tveggja manna Texas Scramble (höggleikur með forgjöf). Forgjöf liðs er fundinn með því að leggja saman leikforgjöf liðsmanna og deila í með fimm. Lið getur þó ekki fengið hærri forgjöf en leikforgjöf þess sem er með lægri forgjöf. Hámarksforgjöf er 36 hjá körlum og 40 hjá konum. 

Jafntefli leyst:
Verði tvö eða fleiri lið jöfn í verðlaunasæti þá vinnur það lið sem hefur færri högg á seinni 9. Ef úrslit ráðast ekki við það gilda síðustu 6, þá síðustu 3 og loks 18. hola. Ef enn er jafnt skal varpa hlutkesti.

Fyrstu rástímar kl. 12:00.

Skráningu lýkur 3. júlí kl. 11:30.

Verð: 5.000 kr. á parið.

 
Opnun Haukadalsvallar

Haukadalsvöllur opnar formlega þetta árið laugardaginn 28. maí.  Frítt kaffi og vöfflur í boði, eins og venjulega á opnunardegi. 

Völlurinn hefur verið seinn til þetta vorið, eins og víðar.  Klakinn farið seint úr jörðu og bleytan því setið lengur í vellinum og hann ekki verið fær stærri vélum, fyrr en í síðustu viku.  Flatir hafa þvi verið slegnar með handvélum undanfarnar vikur. 

Nú er hins vegar allt klárt og vonandi að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og skaffi okkur gott golfveður í bland við vætu fyrir grasið.

 
Helgargolfnámskeið 3.-4. júní öðruvísi golfnámskeið

Boðið verður uppá golfnámskeið með nýju sniði helgina 3.-4. júní.

Lögð verður áhersla á atriðin sem aldrei er sagt frá í golfkennslu á mottunni t.d.: 

Er þetta golfbolti eða golfkúla?

Listin við að tapa bara einu höggi

Hvernig á að fylla út skorkort

Handbolti á golfvellinum

Hvað á og hvað má vera í golfpokanum.

 

Námskeiðstilhögun:

Föstudagur 3. júní

18:00 Kynningarkvöld - Kvöldmatur, fyrirlestrar um golf, er þetta bolti eða kúla? - skýt ég eða slæ?  Skipt í hópa

Laugardagur 4. júní

09:00  Upphitun á æfingasvæði

10:00 Golfleikni - vellinum skipt upp í eitt stórt æfingasvæði - 3 x 30 mín æfingar

12:00 Hádegismatur

13:30 Golfleikur - haldur leiðir blindan.  Leiknar 18 holur - leikmenn aðstoða hver annan við að ná sínum besta árangri

19:00 Kvöldmatur og námskeiðslok

 

Pakki 1 - innifalið

Golf og golfkennsla, kvöldmatur föstudag, hádegismatur og kvöldmatur laugardag

Verð kr. 19.900 á mann

Pakki 2- innifalið

Golf og golfkennsla, kvöldmatur föstudag, gisting m.v. 2 í herbergi, morgun-, hádegis- og kvöldmatur laugardag

Verð kr. 24.900 á mann

 

Aukagistinótt með morgunverði og golfi fyrir 2 á kr. 15.500 (herbergið)

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 1 - 6 af 45
Header Pic
left unten right unten
Haukadalsvöllur / Gistiheimilið Geysi - Haukadal III - 801 Selfoss - Símar: 486 8733, 893 8733 og 898 9141 -   Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það